Afhending
Pantanir eru afgreiddar um leið og greiðsla hefur borist eða næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager verður haft samband við kaupanda og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd ef þess er óskað. Pantanir eru sendar með Íslandspósti.
Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang og velja réttan afhendingarmáta við pöntun. Pantanir eru ekki afgreiddar fyrr en vara hefur verið greidd.
Áhætta af söluhlut flyst yfir til neytenda þegar hann hefur veitt honum viðtöku sbr. 14. gr. laga um neytendakaup nr. 48/2003. Þegar áhætta af hinni seldu vöru hefur flust yfir til kaupanda hefst skylda hans til þess að greiða kaupverðið þótt varan kunni eftir það að farast, skemmast eða rýrna ef um er að ræða atvik sem ekki má rekja með beinum hætti til seljanda.
Greiðsla og sendingarkostnaður
Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum.
Ef greitt er með kortum eða greiðslusíðum fer greiðslan fram í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd. Greiðslur með kredit- og debetkortum eiga sér stað í umhverfi Rapyd þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram.
Stína Sigga Art hefur ekki aðgang að né geymir kortaupplýsingar.
Frí heimsending er á pöntunum.
Verð
Stína Sigga Art áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun.
Vöruskil
Skilaréttur er 14 dagar frá móttöku vöru. Kaupandi er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka. Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort.
Kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Stínu Siggu Art. Kaupandi getur komið ósk sinni um skipti/skil á vöru á framfæri við seljanda með tölvupósti á stinasigga@gmail.com.
Gölluð vara
Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á stinasigga@gmail.com með upplýsingum um galla vörunnar. Tilkynningarfrestur kaupanda vegna galla í vöru er tvö ár eða eftir atvikum fimm ár ef hluti er ætlaður verulega lengri endingatími en almennt gerist sbr. 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Fyrirvari
Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila skal bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Dugir það ekki verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.
Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á stinasigga@gmail.com
Stína Sigga Art
Kt. 050553-4939
