Lýsing
Ég bý í Borgarfirði og þar er vinnustofan mín, umkringd náttúrufegurð og fjölbreyttri upplifun. Út um eldhúsgluggann horfi ég á Skessuhorn í allri sinni dýrð, og ef ég horfi lengra í vestur sé ég Snæfellsjökul.
Skammt frá eru margir fallegir staðir, svo sem Deildartunguhver, Hraunfossar, Barnafoss og Víðgelmir, stærsti hraunhellir landsins. Hér má líka fylgja slóð Egils Skallagrímssonar, einnar margbrotnustu hetju Íslendingasagnanna, þar sem ævi hans og átök tengjast staðháttum og landslagi á áhrifaríkan hátt. Má þar nefna Borg á Mýrum, þar sem hann bjó, og Reykholt, þar sem talið er að Snorri Sturluson hafi síðar skráð sögu hans.
Náttúran hér er einstaklega fjölbreytt: fossar, fjöll, hraun, skógar, hverir og jöklar. Svæðið er sannkölluð uppspretta innblásturs fyrir listina.



