Lýsing
Akríl á striga. Stærð 60×60 cm
Frúin í Hamborg
Frúin í Hamborg er orðaleikur fyrir tvo. Þegar ég og fjölskyldan mín fórum að heimsækja ömmu mína í sveitina, sem var löng keyrsla, hjálpaði leikurinn okkur að stytta stundirnar. Sá sem byrjar spyr: „Hvað keyptirðu fyrir peningana sem frúin í Hamborg gaf þér í gær? Þú mátt ekki segja svart, hvítt, já eða nei.“ Hinn leikmaðurinn býr til eitthvað sem hann þykist hafa keypt. Síðan spjalla leikmennirnir um það og sá sem spyr reynir að fá hinn til að segja bannorðin til að vinna leikinn. Ég sakna þessa leiks – vonandi glatast hann ekki.







