Lýsing
EVERY PORTRAIT TELLS A STORY
Skuggi/Akríl á striga. Stærð; 60×60 cm.
Í dimmum skógi bjó hrafn sem hét Skuggi. Hann flaug hátt, horfði niður á jörðina með sínu skörpu augum og fylgdist með öllu sem gerðist. Á einu slíku flugi sá hann unga índjánastúlkuna, Nayu, sem sat við árbakkann og þráði leiðsögn heimsins.
Naya hafði sterka tengingu við náttúruna og var leitandi eftir einhverju stærra og meiru. Hún vissi að hrafnar voru merki um visku. Amma hennar hafði talað um hvernig hrafninn var sendiboði milli heimanna, dulspakur og hafði spádómsgáfur.
Allt í einu tók hún eftir Skugga þar sem hann flaug í kringum hana.
„Hvað viltu Skuggi?“spurði Naya með rólegri röddu.
Hrafninn flaug nær og settist á tré við hlið hennar. Hann svarði Nayu ég veit að þú þekkir náttúruna og ert að leita að einhverju stærra. Leyndarmál sem þú getur aðeins fundið í hjarta náttúrunnar.
Naya tók eftir því að Skuggi hóf sig á loft, tók ákveðna stefnu eins og hann ætlaði að vísa henni leið. Áður en hún vissi af, hafði hún fylgt honum upp fjallið sem var fyrir ofan dalinn.
Við toppinn, skynjaði hún strax í fyrsta sinn hvernig náttúran var samofin öllum verum. Hún fann þarna þennan sérstaka kraft.
„Það sem þú hefur leita að Naya, er ekkert annað en töfrar og viska náttúrunnar. Taktu þetta með þér og deildu því með fólkinu þínu,sagði Skuggi áður en hann flaug aftur til himins.
Upp frá því var Naya í sambandi við náttúruna á nýjan hátt, full af visku og fyrirmyndum sem hún deildi með öðrum sem á vegi hennar voru. – Krrúúú, krrúúú END







